Kramhúsið – dans, gleði og hópefli með öðru sniði
Hristið hópinn saman, bókstaflega! Í Kramhúsinu getur hópurinn sleppt sér aðeins, prófað nýja takta og átt skemmtilega stund saman þar sem gleðin og góða stemningin eru í aðalhlutverki.
Kramhúsið býður upp á fjölbreytta dans- og hópeflistíma fyrir starfsmannahópa þar sem engin fyrri dansreynsla er nauðsynleg. Hér snýst þetta ekki um að kunna öll réttu sporin heldur að þora að prófa eitthvað nýtt, hlæja saman og hrista aðeins upp í hversdagsleikanum.
Úrvalið er einstaklega fjölbreytt og hægt er að velja stíl sem passar við stemninguna í hópnum. Afró, Bollywood, Beyoncé, diskó, hip hop, burlesque, magadans, Eurovision, Spice Girls, 80's, 90's, TikTok-dansar og Magic Mike eru aðeins nokkur dæmi og jafnvel er hægt að óska eftir sérstöku þema eða dansstíl fyrir hópinn.
Í Kramhúsinu eru tveir salir. Neðri salurinn er minni og hentar vel fyrir notalega og þétta hópastemningu, en efri salurinn er rúmgóð salaraðstaða þar sem hægt er að gera enn meira úr heimsókninni.
Með efri salnum er hægt að bóka aukaaðstöðu eftir tímann, meðal annars búningsklefa, sturtur, útisaunu og aðstöðu á útipalli. Hópurinn getur því haldið áfram að njóta samverunnar eftir dansinn. Einnig er hægt að taka með eigin drykki og veitingar eða kaupa veitingar frá Kramberi.
Frábær starfsmannaafþreying fyrir hópa sem vilja sleppa fram af sér beislinu, hlæja saman og skapa skemmtilegar minningar – hvort sem hópurinn er fullur af dansstjörnum eða fólki með tvo vinstri fætur!
Staðsetning: Bergstaðastræti 7, 101 Reykjavík
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Fyrirspurn um þessa þjónustu
Sendu inn fyrirspurn og við höfum samband með staðfestingu, verði og nánari upplýsingum.
Engin greiðsla fer fram núna — við höfum samband til að staðfesta bókun.